top of page

UM BÓKINA:
 

Sólberg7 dreymir um að vera rappari og gleymir að hlusta á það sem kennarinn segir, Melkorka Marsibil vill helst vera bæði syngjandi og dansandi og Artúr sér heiminn í myndum þegar bókstafirnir fara á flug.

Ekkert af þessu er vinsælt í skólanum og einn morguninn eru öll þrjú send beinustu leið í Hjálparhellinn. Þar er kominn nýr kennari -
Herra Halli. Hann er ólíkur öllum kennurum  sem krakkarnir hafa hitt.

 

Hann fer ótroðnar slóðir og nær að draga fram það besta í sínum nemendum.  Verst að hann hverfur skömmu síðar eins og hann hafi hreinlega gufað upp. Þá eru góð ráð dýr. Artúr, Sólberg7 og Melkorka Marsibil leggja af stað í ævintýralega leit að hugsanlega besta kennara í heimi.

Texti: Kristjana Friðbjörnsdóttir
Myndir: Halldór Baldursson
Blaðsíðufjöldi: 105 
Stuttir kaflar, gott línubil og ríkulega myndskreytt

rosalingarFBCover.jpg
Finndu 6 villur!
bottom of page